Palestínska landslið karla í fótbolta hefur formlega sótt um þátttöku í heimsmeistaramóti karla í knattspyrnu og sent frá sér kynningamyndband á liðinu sem sent verður í keppnina.
Myndbandið er tekið í Gaza borg, höfuðborg Palestínsku þjóðarinnar á Gaza ströndinni sem er lítið annað en rústir einar eftir linnulausar loftárásir hers Ísraels.
En það er yfirlíst stefna Ísraels að jafna borgina og alla Gaza ströndina algerlega við jörðu og hrekja þannig þjóðina endanlega frá sínu eiginn landi, ellegar fremja það þjóðarmorð á Palestínsku þjóðinni sem Ísrael hefur verið og er enn að framkvæma, fólk er ennþá myrt á hverjum degi á Gaza ströndinni og Vesturbakka Jerúsalem.
En það hindrar ekki þjóðina í að spila knattspyrnu.
Hér má sjá kynningar myndbandið á landsliðinu sem póstað var á samskiptamiðilinn X:
— Endilega smellið á örvarnar í hægra horninu neðst svo myndbandið stækki og fylli skjáinn og vefsíðann hverfur. Því myndbandið er mjög áhrifaríkt og faglega unnið í miklum gæðum og nýtur sín best sé það látið fylla út í sjáinn svo vefsíðan hverfi.
The Palestine national team has revealed their roster for the upcoming World Cup qualifiers through a touching video filmed in Gaza. pic.twitter.com/Zq6492k0L6
— Quds News Network (@QudsNen) March 14, 2025
Lýsing á myndbandinu ef það skyldi vera hindrað að hægt sé að horfa á það
Myndbandið hefst á loftmynd af strandlengju Gaza og ungum Palestínskum dreng að sína boltafimi sína.
Síðann dregur hann fram mynd af einum leikmanni landsliðsins undan rústum sundur sprunginnar byggingar í Gaza borg, og leggur af stað fótgangandi milli fallinna bygginganna og hittir annann dreng sem einnig dregur fram mynd af öðrum leikmanni liðsins. Saman halda þeir áfram og hitta þann þriðja sem dregur fram næstu mynd.
Áfram er haldið uns myndast hefur hópur drengja sem ganga um götur Gaza með myndirnar, hver með sína mynd af leikmönnum landsliðsins, þar til þeir koma á fótboltavöll sem er þakin af tjöldum fólks sem hefur misst heimili sín í loftárásum Ísraels.
Þar stilla þeir upp myndunum af leikmönnum landsliðsins sem þeir drógu út úr rústum borgarinnar og spila fótbolta með myndirnar í bakgrunni framan við tjöldin sem fylla fótboltavöllinn.
Milli atriða er skotið inn myndum frá daglegu lífi í Gaza – börn í skólastofu í tjaldi, fólk að sækja vatn, fólk að versla á mörkuðum – allt innanum hina umfangsmiklu eyðileggingu sem her Ísraels hefur valdið á Gaza, sem er vart annað en rústir einar.
En eyðileggingin stöðvar ekki að spila knattspyrnu, og Palestína á að skipa færum knattspyrnumönnum og hafa formlega sótt um þátttöku Palestínska landsliðs karla í heimsmeistaramótinu í knattspyrnu.